Jæja loksins gefur maður sér tíma til að skrifa eitthvað, eftir annir síðustu vikna. Það er búið að vera mikið fiskirí hjá okkur á Örvari. Svo er líka búið að breyta blogcentral all rosalega svo ég held ég verði margar vikur að taka til á síðuni. Annas er allt gott að frétta héðan af Hellissandi eða frá útnesjapakkinu eins og Baddi frændi og skipsfélagi minn ( og eyjamaður) kallar okkur alltaf. Við nennum varla orðið að skreppa suður á Skaga, búin að fresta því í umþaðbil 2 vikur. Enda ekki nema von þangað er ekkert að sækja nema fyllirí, vitleysinga, eymd og volæði. Ekki gott fyrir virðulegan fjölskylduföður sem er að reyna að taka sig á og hætta að drekka.
Rannveig og stelpurnar eru líka að fíla sig hérna hjá útnesjapakkinu, og Rannveigu líkar svo vel í vinnuni að hún getur varla beðið eftir að klukkan hringi á morgnana

. Það er líka gaman í leikskólanum hjá þeim litlu og Embla sú eldri hefur ekki undan að fara í afmælisveislur.
Eins og ég sagði einhverntíman að þá gefast Snæfellingar ekki upp og fara að væla, því nýjustu fréttir eru þær að það er ekki búið að blása vatnsverksmiðjuna í Rifi af og líkur (svona 80%

) á að framkvæmdir hefjist aftur í sumar.
Svona erum við í Snæfellsbæ alltaf hátt uppi án þess að smakka það